Profilo di Aðalsteinnalli™FotoBlogElenchi Strumenti Guida

Blog


26/09/2006

I can't belive it...

Ný færsla...
 
Verður stutt þó, ég veit ekki ahverju en ég stóðst ekki að setja inn nýja færslu af einhverri ástæðu.
 
Ég er líka fullviss um að það les þetta enginn, en vá hvað þessar fyrstu færslur verða líka vangefnar ef einhver tekur uppá því að lesa þetta einhvern daginn. Þangað til mun ég hugsa um þetta meira einsog ... hmm skulum segja vefdagbók... nei bíddu...
 
Anyway, er víst orðinn penni á bitur.is og búinn að skrifa þar inn einsog 2 dálka. Ákvað að reyna fyrir mér í svona smáskriftum fyrst ég er nú byrjaður að skrifa hér á annað borð.
 
Hmm, hvað meira... Helgin sem leið. Ég var fullur, ég var þunnur, ég spilaði póker og tapaði. That about sums it up, nenni ekki að fara í meira deitail þar sem þetta var rosalega bara hefðbundin helgi, ber kanski að minnast helst á að þetta var önnur helgin í röð þar sem ég drakk absinthe í massavís, blandað aftur einsog á að gera klárlega.
 
En þar til síðar, og endilega kíkið á bitur.is
18/09/2006

Helgin & Absinthe!

Ég hata fyllerí.
 
Undanfarnar helgar hafa orðið rosalega mikið að engu (nú nema fylleríum) sem að klárlega endar svo á því að ég djamma á föstudegi og sef til svona sex á laugardegi og stuttu síðar er ég kominn aftur á fyllerí langt frammá nótt og vakna ekki fyrren svona sjö á sunnudegi. Ég held ég hafi ekki upplifað Laugardag í alveg lengri tíma, eingöngu laugardagskvöld.
 
Allaveganna, föstudaginn kíkti ég til Begga og við ætluðum á Hansen og fá okkur "einn bjór". Klárlega drukkum við amk. tvo bjóra áður en við fórum á Hansen og fengum okkur mun meira en einn bjór þar. Ásamt því að fá okkur Viskí þar sem virtist vera einhver Viskí faraldur að ganga yfir liðið á Hansen þetta kvöldið. Kvöldið endaði nú samt bara nokkuð snemma eftir að nokkrir útvaldir aðilar kíkti í heimsókn til mín eftir Hansen og heltu í sig örlítið meira áfengi áður en allir fóru annaðhvort í bæinn eða heim.
 
Laugardagskvöld (svona sirca sá tími sem ég er að skríða á fætur daginn eftir), er kveðjupartý hjá Ívari bróður hans Nóa sem er á leiðinni erlendis (og reyndar var kvöldið einnig afmælisveisla fyrir Nóa).
Fínt kvöld, miklar gríðarlega umræður í gangi allt kvöldið og nóg drukkið og þar af slatti af Absinthe. OG shit, mér datt ekki í hug að absinthe sé í alvörunni gott. Það er að segja svo lengi sem maður er ekki að staupa það! Blandað með vatni og sykri (sem við meiraðsegja kveiktum í samkvæmt leiðbeiningum á flöskunni) og Absinthe er alltíeinu orðinn þessi æðislega fíni drykkur, jafnvel þrátt fyrir að flaskan hans Nóa innihaldi Wormwood sem hefur einhverntímann verið haldið fram að valdi ofskynjunum en einnig laungu búið að afsanna. Tók ekki eftir því að hafa verið neitt öðruvísi fullur af þessu Absinthe-i. Hinsvegar var ég alveg verulega öðruvísi þunnur daginn eftir, skrítnasta þynnka sem ég hef fengið og get eiginlega ekki lýst því með orðum.
 
En já, blogg sökkar og finnst líklegt að þetta sé seinasta færslan hérna inni nema einhver gefi mér góðar ástæður fyrir því að halda þessu áfram.
 
ble
 
14/09/2006

Myspace hvað?

Úff, einhvernveginn grunar mig að ég muni engann veginn nenna að standa í því að halda uppi blogg síðu.
 
En eftir fyrst að Maggi vældi svo mikið í mér um að setja upp myspace síðu ákvað ég að vera rebel og setja upp Live Spaces síðu :p take that Maggi.
 
Anywho, Quick recap á helgina og vikuna.
 
Mig minnir að ég hafi fengið mér bjór og mögulega verið ölvaður á föstudaginn, á laugardaginn hinsvegar fékk ég mér pottþétt bjór og var ölvaður. Sem betur fer ekki jafnölvaðir og sumir. Ármann og Maggi voru hressir einsog ávalt, sömuleiðis Kári sem var hress allt kvöldið og hreytti útúr sér fleygum setningum einsog "You've got to be this tall to ride the mustache ride" og "Go back home to your whore island" í skoskar stelpur sem við rákust á í bænum.
Gunni ákvað einnig að tjá þeim "I used to be in a boyband!" og "On the scale of 1 to 7 you're a -4".
Reyndar virtist vera eitthvað agreement hjá þeim Gunna og Kára um að vera hreinelga dónalegir við alla þetta kvöldið.
Kára og Gunna var einnig sparkað út af Belly's fyrir að ÖSKRA Maístjörnuna. :p
Ég vill íka meina að Ari hafi verið sótölvaður þetta kvöldið þrátt fyrir að hann haldi því ítrekað fram að hann drekki ekki.
 
Tók út litla sem enga þynnku á sunnudaginn en var líka svo ánægður með það að það er það eina sem ég man eftir af deginum.
 
Mánudagur, Þriðjudagur, Miðvikudagur. Hmm...
Þriðjudag og Miðvikudag kíkti Ármann í heimsókn að glápa á Rockstar. Vorum báðir nokkuð sáttir við úrslitin bara, þá fær maður kanski að heyra Toby spila almennilega tónlist með sínu eigin bandi.
 
Well, off, mögulega more to come