| Profilo di Aðalsteinnalli™FotoBlogElenchi | Guida |
|
30/10/2006 4. Besti FIFA spilari landsins!Jææææja, það er bara ný bloggfærsla...
Hún er reyndar ekki merkilegri en það að segja frá því að ég hef ekki gert rassgat síðan ég bloggaði síðast nema bara same-old same-old, ja eða alveg þangað til núna um helgina sem leið.
Föstudaginn í vinnunni kemur Andri frændi á MSN og bendir mér á að það sé Leikjaveiki XFM á Laugardaginn þar sem keppt verður í FIFA, sem við erum einmitt búnir að spila ítrekað núna í smá tíma með misgóðum árangri mínum í því að rústa Andra, þess ber þó að geta að mesta rústið hingað til er 8 - 1 fyrir mér ;).
En já einsog ég segi þá manar Andri mig í að skrá mig á þetta mót þar sem hann vildi ekki fara einn. Jújú ég skrái mig og fæ að vita að mótið er klukkan 12 á hádegi, mæting 11:30, og Andri sagði mér að hann vissi þá ekki hvort hann kæmist þar sem hann væri í prófi. Ég klárlega offaði keppnina og hugsaði að við myndum ekkert mæta þar sem Andri yrði pottþétt í prófi, þannig að ég skelltii mér náttúrulega bara á djammið á Föstudagskvöldinu sem var einmit BIFA djamm (Bjór og FIFA) með Begga, Danna, Gísla og Frikka. Andri kíkti líka við tók með okkur nokkra leiki og Ármann kom, og fór svo bara strax aftur þar sem han er greinilega orðinn einhverskonar stelpusendill og þurfti að sækja einhverja stelpu fyrir Gunna og skutla henni til hans.
Kvöldið endaði svo á rölti og aukinni drykkju á Café Aroma og Hansen og loks í domino's pizzu á leiðinni heim sem gaurinn sem var að vinna var ekki ánægður með að ég og Elíza mættum að kaupa pizzu sirca 2 mín fyrir lokun. Eeeeeee það dregur mig aftur að FIFA mótinu. Laugardagsmorgun hringir Andri í mig klukkan hálftólf og segir að við séum að fara á FIFA mótið þar sem hann var búinn snemma í prófinu. Flott!
Ég veit ekki hvernig en ég náði samt sem áður að kom mér á fætur og mæta inní Smáralind þar sem mótið klukkan 12 þar sem Andri hafði staðfest að ég myndi mæta. Kem á staðinn hitti Andra, nokkurnveginn átta mig á því að ég er meira fullur en þunnur og rosalega illa upplagður í einhvern svona kjánaskap. Þrauka samt á staðnum og ætla taka einsog einn leik eða svo...
Keppnin byrjar á riðlakeppni þar sem bæði ég og Andri töpum okkar fyrsta leik, í sinhvorum riðlinum, þá leist mér nú ekkert á þetta, nema hvað að svo unnum við báðir restina af leikjunum í riðlunum okkar og komumst upp í 16 liða úrslit, sem við báðir komumst í gegnum, og 8 liða úrslitin líka og erum bara mættir í undanúrslit. Þá hinsvegar ... er þynnkan búin að ágerast svolítið mikið allt helvítis mótið og manni farið að líða soldið illa.
En jú við spilum báðir í undanúrslitum og töpum þar báðir naumlega Andri 2-1 og ég 2-0, og það fyrir framan myndatökumann frá GameTV. Spilum svo uppá 3.sætið þar sem Andri rétt marði mig ... 5 - 0 (eeeen ég minnni á 8 - 1 rústið sem ég minntist á hér ofar)
Svo héngum við á staðnum meðan úrslitaleikurinn var spilaður og tókum á móti verlaunum, mín voru 2 kippur af Egils Orku.
Og þetta var semsagt sagan af því hvernig ég varð 4.Besti FIFA spilari á landinu.
Annað í fréttum... pælí að blogga ekki meira, sem ég segi samt alltaf heldég og gæti verið lúmskt háður. Ble. 09/10/2006 PókerkveldJá, laugardagskvöld var tekið undir hálfsmánaðarlegan "frænda-póker", og ef bara það mætti ekki allt liðið (ja svona amk þeir sem eru á landinu) Andri, Benni, Knútur, Matti og Kitti. Atli "frændavinur" ætlaði reyndar líka að vera með en hann beilaði.
Hinsvegar er kanski ekkert merkilegt við það að hafa tekið pókerkvöld nema hvað að þetta kvöld var bara engann veginn að gera sig. Ég og Andri (sem erum klárlega án nokkurs efa lang öflugustu pókerspilararnir af ofangreindu fólki) stóðum okkur hreinlega engann veginn vel.
Andri sem mætti með nýja "lukku/afslappandi" pýramídann sinn var fyrstur út og ég var ekki lengi að fylgja á eftir. Jæja til að hafa þó eitthvað að gera tókum við Andri þá bara nokkra leiki í Fifa 07, ég þurfti klárlega að tapa fyrstu 2 leikjunum fyrir honum viljandi þar sem hann hefði sennilega ekki höndlað meira tap þetta kvöldið en ákvað samt að rústa honum í 3ja leiknum. ;)
Annað sem ber af síðan í síðustu færslu... nothing that comes to mind. Svo virðist sem maður lifi mjög einföldu og óviðburðarríku lífi á virkum dögum.
PS.
Þessi færsla er tileinkuð Pýramídanum hans Andra.
02/10/2006 Yfirsof og HelginVá hvað ég þoli ekki svefn, vita gagnslaust helvíti. Alvarleg tímasóun á annars mjög dýrmætum tíma.
Svo virðist ég heldur ekki fær um að hitta á réttann svefntíma, annaðhvort er ég skítþreyttur afþví ég sef of lítið eða drulluþreyttur afþví ég sef of mikið. Frekar svekkjandi þar sem þessi örfáu skipti þar sem ég hitti á réttan svefntíma þá er ég alveg ofurhress allann daginn.
En já svo þoli ég ekki þegar maður vaknar, á virkum degi, og það er auðvitað vinna þá. Ég hinsvegar vakna, skil ekkert afhverju ég er að vakna þar sem ég heyri ekki í neinni vekjaraklukku. Finn hinsvegar símann minn undir koddanum eða lengst undir sæng einhverstaðar og kemst að því að ég er orðinn 5 mínútum of seinn í vinnuna nú þegar. Og auðvitað man ég ekkert eftir því að hafa vaknað við neina vekjaraklukku þarna á undann og hvað þá að slökkva á helvítinu.
Ég tók meiraðsgeja einhverntímann uppá því að vera með 2 vekjaraklukkur, þ.e. vekjaraklukkuna á símanum og síðan svona conventional vekjaraklukku með alveg allsvakalegum hávaða. Merkilegt nokk hefur mér meiraðsegja tekist að sofa í gegnum þær báðar án þess að hafa nokkra vitund á því að hafa vaknað yfirhöfuð við lætin.
Spurning hvort ég þurfi að fara fá mér einhverskonar tæki sem vekur mig með köldu vatni eða jafnvel ýtir mér úr rúminu þannig að ég vakna við að skella í gólfinu eftir meters fall.
En þá er það helgin. Einsog virðist hafa orðið að einum of mikilli venju var ég ölvaður. Föstudagurinn var nýttur í gott Burnout fyllerí heima hjá mér þar sem Nói, Beggi og Danni kíktu í heimsókn. Eftir að mikinn glanna-akstur og drykkju kíktum við svo niður á Café Aroma þar sem við sátum til 3. Munar rosalega að geta kíkt á svona stað sem er ekki opinn of lengi og rölt heim eftirá.
Laugardaginn hringdi Ármann svo í mig, ég var fljótur að tjá honum að ef að símtalið ætti eftir að fjalla um áfengi, djamm og/eða drykkju myndi ég láta köttinn minn taka Tyson á hann og bíta af honum eyrað. Þrátt fyrir viðvörunina náði Ármann að sannfæra mig um að kíkja með honum niður á 89Hverfisgötu til 89Natta og 89Gunna þar sem Gunni var að halda uppá nýliðið afmæli sitt.
Merkilegt nokk, þá meiraðsegja kíkti Nói með okkur, en hann hefur einmitt ekki sést djamma 2 daga í röð hér á landi í fleiri fleiri ár.
Fórum svo fyrr en síðar niður í bæ þar sem við hittum eitthvað af fleira fólki og djömmuðum eitthvað frammá nótt. Var reyndar rosalega venjulegt bæjarrölt bara, kíktum á Hverfis og Sólon. Á leiðinni heim rölti ég með Ármanni og Töru á Devito's þar sem við slátruðum léttilega einni 18" pizzu áður en við tókum taxa heim.
Ég er ekki frá því að næstu helgi ætli ég alveg svakalega að taka á því og jafnvel ekki drekka. Ég reyndar einhvernveginn minnist þess að hafa haldið þessu fram í svona 2 mánuði núna án árangurs, en minn tími mun koma! 26/09/2006 I can't belive it...Ný færsla...
Verður stutt þó, ég veit ekki ahverju en ég stóðst ekki að setja inn nýja færslu af einhverri ástæðu.
Ég er líka fullviss um að það les þetta enginn, en vá hvað þessar fyrstu færslur verða líka vangefnar ef einhver tekur uppá því að lesa þetta einhvern daginn. Þangað til mun ég hugsa um þetta meira einsog ... hmm skulum segja vefdagbók... nei bíddu...
Anyway, er víst orðinn penni á bitur.is og búinn að skrifa þar inn einsog 2 dálka. Ákvað að reyna fyrir mér í svona smáskriftum fyrst ég er nú byrjaður að skrifa hér á annað borð.
Hmm, hvað meira... Helgin sem leið. Ég var fullur, ég var þunnur, ég spilaði póker og tapaði. That about sums it up, nenni ekki að fara í meira deitail þar sem þetta var rosalega bara hefðbundin helgi, ber kanski að minnast helst á að þetta var önnur helgin í röð þar sem ég drakk absinthe í massavís, blandað aftur einsog á að gera klárlega.
En þar til síðar, og endilega kíkið á bitur.is 18/09/2006 Helgin & Absinthe!Ég hata fyllerí.
Undanfarnar helgar hafa orðið rosalega mikið að engu (nú nema fylleríum) sem að klárlega endar svo á því að ég djamma á föstudegi og sef til svona sex á laugardegi og stuttu síðar er ég kominn aftur á fyllerí langt frammá nótt og vakna ekki fyrren svona sjö á sunnudegi. Ég held ég hafi ekki upplifað Laugardag í alveg lengri tíma, eingöngu laugardagskvöld.
Allaveganna, föstudaginn kíkti ég til Begga og við ætluðum á Hansen og fá okkur "einn bjór". Klárlega drukkum við amk. tvo bjóra áður en við fórum á Hansen og fengum okkur mun meira en einn bjór þar. Ásamt því að fá okkur Viskí þar sem virtist vera einhver Viskí faraldur að ganga yfir liðið á Hansen þetta kvöldið. Kvöldið endaði nú samt bara nokkuð snemma eftir að nokkrir útvaldir aðilar kíkti í heimsókn til mín eftir Hansen og heltu í sig örlítið meira áfengi áður en allir fóru annaðhvort í bæinn eða heim.
Laugardagskvöld (svona sirca sá tími sem ég er að skríða á fætur daginn eftir), er kveðjupartý hjá Ívari bróður hans Nóa sem er á leiðinni erlendis (og reyndar var kvöldið einnig afmælisveisla fyrir Nóa).
Fínt kvöld, miklar gríðarlega umræður í gangi allt kvöldið og nóg drukkið og þar af slatti af Absinthe. OG shit, mér datt ekki í hug að absinthe sé í alvörunni gott. Það er að segja svo lengi sem maður er ekki að staupa það! Blandað með vatni og sykri (sem við meiraðsegja kveiktum í samkvæmt leiðbeiningum á flöskunni) og Absinthe er alltíeinu orðinn þessi æðislega fíni drykkur, jafnvel þrátt fyrir að flaskan hans Nóa innihaldi Wormwood sem hefur einhverntímann verið haldið fram að valdi ofskynjunum en einnig laungu búið að afsanna. Tók ekki eftir því að hafa verið neitt öðruvísi fullur af þessu Absinthe-i. Hinsvegar var ég alveg verulega öðruvísi þunnur daginn eftir, skrítnasta þynnka sem ég hef fengið og get eiginlega ekki lýst því með orðum.
En já, blogg sökkar og finnst líklegt að þetta sé seinasta færslan hérna inni nema einhver gefi mér góðar ástæður fyrir því að halda þessu áfram.
ble
14/09/2006 Myspace hvað?Úff, einhvernveginn grunar mig að ég muni engann veginn nenna að standa í því að halda uppi blogg síðu.
En eftir fyrst að Maggi vældi svo mikið í mér um að setja upp myspace síðu ákvað ég að vera rebel og setja upp Live Spaces síðu :p take that Maggi.
Anywho, Quick recap á helgina og vikuna.
Mig minnir að ég hafi fengið mér bjór og mögulega verið ölvaður á föstudaginn, á laugardaginn hinsvegar fékk ég mér pottþétt bjór og var ölvaður. Sem betur fer ekki jafnölvaðir og sumir. Ármann og Maggi voru hressir einsog ávalt, sömuleiðis Kári sem var hress allt kvöldið og hreytti útúr sér fleygum setningum einsog "You've got to be this tall to ride the mustache ride" og "Go back home to your whore island" í skoskar stelpur sem við rákust á í bænum.
Gunni ákvað einnig að tjá þeim "I used to be in a boyband!" og "On the scale of 1 to 7 you're a -4".
Reyndar virtist vera eitthvað agreement hjá þeim Gunna og Kára um að vera hreinelga dónalegir við alla þetta kvöldið.
Kára og Gunna var einnig sparkað út af Belly's fyrir að ÖSKRA Maístjörnuna. :p
Ég vill íka meina að Ari hafi verið sótölvaður þetta kvöldið þrátt fyrir að hann haldi því ítrekað fram að hann drekki ekki.
Tók út litla sem enga þynnku á sunnudaginn en var líka svo ánægður með það að það er það eina sem ég man eftir af deginum.
Mánudagur, Þriðjudagur, Miðvikudagur. Hmm...
Þriðjudag og Miðvikudag kíkti Ármann í heimsókn að glápa á Rockstar. Vorum báðir nokkuð sáttir við úrslitin bara, þá fær maður kanski að heyra Toby spila almennilega tónlist með sínu eigin bandi.
Well, off, mögulega more to come
|
|
|