| Profilo di Aðalsteinnalli™FotoBlogElenchi | Guida |
|
02/10/2006 Yfirsof og HelginVá hvað ég þoli ekki svefn, vita gagnslaust helvíti. Alvarleg tímasóun á annars mjög dýrmætum tíma.
Svo virðist ég heldur ekki fær um að hitta á réttann svefntíma, annaðhvort er ég skítþreyttur afþví ég sef of lítið eða drulluþreyttur afþví ég sef of mikið. Frekar svekkjandi þar sem þessi örfáu skipti þar sem ég hitti á réttan svefntíma þá er ég alveg ofurhress allann daginn.
En já svo þoli ég ekki þegar maður vaknar, á virkum degi, og það er auðvitað vinna þá. Ég hinsvegar vakna, skil ekkert afhverju ég er að vakna þar sem ég heyri ekki í neinni vekjaraklukku. Finn hinsvegar símann minn undir koddanum eða lengst undir sæng einhverstaðar og kemst að því að ég er orðinn 5 mínútum of seinn í vinnuna nú þegar. Og auðvitað man ég ekkert eftir því að hafa vaknað við neina vekjaraklukku þarna á undann og hvað þá að slökkva á helvítinu.
Ég tók meiraðsgeja einhverntímann uppá því að vera með 2 vekjaraklukkur, þ.e. vekjaraklukkuna á símanum og síðan svona conventional vekjaraklukku með alveg allsvakalegum hávaða. Merkilegt nokk hefur mér meiraðsegja tekist að sofa í gegnum þær báðar án þess að hafa nokkra vitund á því að hafa vaknað yfirhöfuð við lætin.
Spurning hvort ég þurfi að fara fá mér einhverskonar tæki sem vekur mig með köldu vatni eða jafnvel ýtir mér úr rúminu þannig að ég vakna við að skella í gólfinu eftir meters fall.
En þá er það helgin. Einsog virðist hafa orðið að einum of mikilli venju var ég ölvaður. Föstudagurinn var nýttur í gott Burnout fyllerí heima hjá mér þar sem Nói, Beggi og Danni kíktu í heimsókn. Eftir að mikinn glanna-akstur og drykkju kíktum við svo niður á Café Aroma þar sem við sátum til 3. Munar rosalega að geta kíkt á svona stað sem er ekki opinn of lengi og rölt heim eftirá.
Laugardaginn hringdi Ármann svo í mig, ég var fljótur að tjá honum að ef að símtalið ætti eftir að fjalla um áfengi, djamm og/eða drykkju myndi ég láta köttinn minn taka Tyson á hann og bíta af honum eyrað. Þrátt fyrir viðvörunina náði Ármann að sannfæra mig um að kíkja með honum niður á 89Hverfisgötu til 89Natta og 89Gunna þar sem Gunni var að halda uppá nýliðið afmæli sitt.
Merkilegt nokk, þá meiraðsegja kíkti Nói með okkur, en hann hefur einmitt ekki sést djamma 2 daga í röð hér á landi í fleiri fleiri ár.
Fórum svo fyrr en síðar niður í bæ þar sem við hittum eitthvað af fleira fólki og djömmuðum eitthvað frammá nótt. Var reyndar rosalega venjulegt bæjarrölt bara, kíktum á Hverfis og Sólon. Á leiðinni heim rölti ég með Ármanni og Töru á Devito's þar sem við slátruðum léttilega einni 18" pizzu áður en við tókum taxa heim.
Ég er ekki frá því að næstu helgi ætli ég alveg svakalega að taka á því og jafnvel ekki drekka. Ég reyndar einhvernveginn minnist þess að hafa haldið þessu fram í svona 2 mánuði núna án árangurs, en minn tími mun koma! CommentiPer aggiungere un commento, accedi con il tuo Windows Live ID (se utilizzi Hotmail, Messenger o Xbox LIVE possiedi già un Windows Live ID). Accedi Non hai ancora un Windows Live ID? Registrati RiferimentiL'URL di riferimento per questo intervento è: http://allitm.spaces.live.com/blog/cns!56026DF3CF3D240C!163.trak Blog che fanno riferimento a questo intervento
|
|
|