| Profilo di Aðalsteinnalli™FotoBlogElenchi | Guida |
|
30/10/2006 4. Besti FIFA spilari landsins!Jææææja, það er bara ný bloggfærsla...
Hún er reyndar ekki merkilegri en það að segja frá því að ég hef ekki gert rassgat síðan ég bloggaði síðast nema bara same-old same-old, ja eða alveg þangað til núna um helgina sem leið.
Föstudaginn í vinnunni kemur Andri frændi á MSN og bendir mér á að það sé Leikjaveiki XFM á Laugardaginn þar sem keppt verður í FIFA, sem við erum einmitt búnir að spila ítrekað núna í smá tíma með misgóðum árangri mínum í því að rústa Andra, þess ber þó að geta að mesta rústið hingað til er 8 - 1 fyrir mér ;).
En já einsog ég segi þá manar Andri mig í að skrá mig á þetta mót þar sem hann vildi ekki fara einn. Jújú ég skrái mig og fæ að vita að mótið er klukkan 12 á hádegi, mæting 11:30, og Andri sagði mér að hann vissi þá ekki hvort hann kæmist þar sem hann væri í prófi. Ég klárlega offaði keppnina og hugsaði að við myndum ekkert mæta þar sem Andri yrði pottþétt í prófi, þannig að ég skelltii mér náttúrulega bara á djammið á Föstudagskvöldinu sem var einmit BIFA djamm (Bjór og FIFA) með Begga, Danna, Gísla og Frikka. Andri kíkti líka við tók með okkur nokkra leiki og Ármann kom, og fór svo bara strax aftur þar sem han er greinilega orðinn einhverskonar stelpusendill og þurfti að sækja einhverja stelpu fyrir Gunna og skutla henni til hans.
Kvöldið endaði svo á rölti og aukinni drykkju á Café Aroma og Hansen og loks í domino's pizzu á leiðinni heim sem gaurinn sem var að vinna var ekki ánægður með að ég og Elíza mættum að kaupa pizzu sirca 2 mín fyrir lokun. Eeeeeee það dregur mig aftur að FIFA mótinu. Laugardagsmorgun hringir Andri í mig klukkan hálftólf og segir að við séum að fara á FIFA mótið þar sem hann var búinn snemma í prófinu. Flott!
Ég veit ekki hvernig en ég náði samt sem áður að kom mér á fætur og mæta inní Smáralind þar sem mótið klukkan 12 þar sem Andri hafði staðfest að ég myndi mæta. Kem á staðinn hitti Andra, nokkurnveginn átta mig á því að ég er meira fullur en þunnur og rosalega illa upplagður í einhvern svona kjánaskap. Þrauka samt á staðnum og ætla taka einsog einn leik eða svo...
Keppnin byrjar á riðlakeppni þar sem bæði ég og Andri töpum okkar fyrsta leik, í sinhvorum riðlinum, þá leist mér nú ekkert á þetta, nema hvað að svo unnum við báðir restina af leikjunum í riðlunum okkar og komumst upp í 16 liða úrslit, sem við báðir komumst í gegnum, og 8 liða úrslitin líka og erum bara mættir í undanúrslit. Þá hinsvegar ... er þynnkan búin að ágerast svolítið mikið allt helvítis mótið og manni farið að líða soldið illa.
En jú við spilum báðir í undanúrslitum og töpum þar báðir naumlega Andri 2-1 og ég 2-0, og það fyrir framan myndatökumann frá GameTV. Spilum svo uppá 3.sætið þar sem Andri rétt marði mig ... 5 - 0 (eeeen ég minnni á 8 - 1 rústið sem ég minntist á hér ofar)
Svo héngum við á staðnum meðan úrslitaleikurinn var spilaður og tókum á móti verlaunum, mín voru 2 kippur af Egils Orku.
Og þetta var semsagt sagan af því hvernig ég varð 4.Besti FIFA spilari á landinu.
Annað í fréttum... pælí að blogga ekki meira, sem ég segi samt alltaf heldég og gæti verið lúmskt háður. Ble. Commenti (1)Per aggiungere un commento, accedi con il tuo Windows Live ID (se utilizzi Hotmail, Messenger o Xbox LIVE possiedi già un Windows Live ID). Accedi Non hai ancora un Windows Live ID? Registrati
RiferimentiL'URL di riferimento per questo intervento è: http://allitm.spaces.live.com/blog/cns!56026DF3CF3D240C!168.trak Blog che fanno riferimento a questo intervento
|
|
|